Vetnissamfélagið Ísland
Iðntæknistofnun vinnur rannsókna- og þróunarverkefnum þar sem innlend og umhverfisvæn orka kemur í stað olíu og bensíns. Meðal þessara verkefna eru “Ectos” og “Natríumbórvetni til geymslu vetnis”. Þessum verkefnum er lýst frekar hér að neðan.
ECTOS - Vetnisvagnar í Reykjavík
ECTOS verkefnið er fólgið í rekstri á vetnisstöð og akstri strætisvagna sem ganga fyrir vetni og eru drifnir með efnarafölum. Jafnframt fara fram mælingar á umhverfisáhrifum og kannanir á viðtökum almennings við þessari nýjung.
Mat Iðntæknistofnunar á umhverfisáhrifum
Iðntæknistofnun vinnur einkum að umhverfisþætti verkefnisins með athugun á umhverfisáhrifum vagnanna og samanburði við aðra orkugjafa. Skoðað er hvernig vetnisvæðing getur breytt loftgæðum í borginni til lengri tíma litið.
Náin samvinna er við önnur tilraunaverkefni á þessu sviði sem eru í gangi í Evrópu. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér.
Natríumbórvetni til geymslu vetnis
Stöðugt er verið að leita hentugra geymsluaðferða vetnis (H2) og er natríumbórvetni (NaBH4) áhugaverður kostur vegna þess hversu meðfærilegt og hættulaust það er.
Iðntæknistofnun þróar framleiðsluferli
Í verkefninu er þekking Íslendinga á endurnýjanlegum orkugjöfum og efnaferlum nýtt til hönnunar framleiðsluferlis á natríumbórvetni. Unnið er með bandaríska hugmynd og framleiðslan aðlöguð íslenskum aðstæðum. Sérstaklega er horft til notkunar gufuaflsvirkjana í þessu tilliti. Auk þess er þróuð endurhleðsluaðferð á bórnum með tilliti til íslenskra aðstæðna, þar sem NaBO2 er breytt í NaBH4. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér.