Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Iðntæknistofnunar

Markáætlun í örtækni

Efnis- og umhverfistæknideild og Genís ehf. hljóta styrk til þróunar á beinsementi

Efnis- og umhverfistæknideild Iðntæknistofnunar í samstarfi við fyrirtækið Genís ehf. hefur hlotið styrk til verkefnisins “Hýdroxyapatít-kítósan örsamsetningar til endurnýjunar á beinvef”.

Markmið verkefnisins er að þróa beinsement sem nota á til að gera við beinbrot og til að endurnýja skaddaðan beinvef. Náttúrulegt bein er að stórum hluta hýdroxyapatít. Kítósan er beinvaxtarhvetjandi auk þess að hafa t.d. bólguhemjandi eiginleika. Stjórnun eiginleika kítósansins og stjórnun efnisgerðar og efniseiginleika hýdroxýapatítsins, svo og samspil þessara þátta á örskala, munu gegna lykilhlutverki í að hanna beinsement með heppilegum eiginleikum hvað varðar t.d. lífvirkni, styrk og hörðnunartíma.

Verkefnið er styrkt af Rannís innan ramma  “Markáætlunar um örtækni”.

Nánari upplýsingar:

Gissur Örlygsson
Sími: 570 7193

Netfang: [email protected]


Viðburðir

 «September 2007» 
sunmánþrimiðfimföslau
      1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30      

Póstlisti
Skráðu þig á póstlista Iðntæknistofnunar og fáðu fréttir af starfinu.

Leiðarkerfi


Slóðin þín:

Fréttir » Efnis- og umhverfistækni

Stjórnborð

English web Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Senda þessa síðu

Flýtileiðir