Fróðleikur um hollustu og efnainnihald
Næring og hollusta matvæla skiptir alla máli. Matra hefur unnið að verkefnum sem miða að því að gera framleiðendum kleift að draga úr saltinnihaldi matvæla. Einnig var íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) settur saman og er haldið við á Matra.
Nokkur verkefni hafa miðað að því að hámarka gæði grænmetis. Plöntuhollefni (virk efni í grænmeti og ávöxtum) hafa einnig verið til skoðunar.