Grunnnám í verkefnastjórnun
Lykill að góðum árangri í umbótaverkefnum er kunnátta í stjórnun verkefna, allt frá því að hugmynd að verkefni vaknar og þar til það hefur verið farsællega til lykta leitt. Á þessu námskeiði er fjallað um grundvallaratriði verkefnastjórnunar og aðferðir kenndar sem koma að góðum notun, hvort heldur er innan fyrirtækja, stofnana eða hjá félagasamtökum.
Námskeiðið er ætlað starfsmönnum og stjórnendum sem þurfa að stjórna verkefnum en hafa ekki fagþekkingu á verkefnisstjórnun og þeim sem vilja rifja upp. Námskeiðið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa það hlutverk að innleiða nýjungar innan fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka.
Við námskeiðslok hafa þátttakendur m.a. öðlast:
- grunnþekkingu á verkefnastjórnun,
- hagnýtar aðferðir við stjórnun verkefna,
- þekkingu á gerð framkvæmdaáætlana - verk-, tíma-, kostnaðar- og fjármögnunaráætlana,
- kunnáttu til að meta óvissuþætti verkefna,
- kunnáttu í þverfaglegu samstarfi
- Verkefnishugmyndir og mótun þeirra
- Verkefnisræs
- Hópvinna - mat á hagsmunaaðilum og óvissu
- Gerð framkvæmdaáætlana
- Eftirfylgni og mat á árangri
Fyrirlestrar.
Karl Friðriksson, hagfræðingur.
1 og 1/2 dagur.
19.500
Hafið samband við Karl Friðriksson og/eða Jón Hreinsson ef nánari upplýsinga er þörf. |