Ný bók um stofnun fyrirtækja. Þann 15. desember verður iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhent fyrsta eintakið af nýrri bók um stofnun fyrirtækja. Bókin er gefin út af Impru nýsköpunarmiðstöð í samvinnu við Ax hugbúnaðarhús og Háskólann í Reykjavík. Í bókinni er auðvelt að finna nauðsynlegustu upplýsingar við stofnun fyrirtækja og verða kaflar úr henni settir á vef stofnunarinnar. |