Stækka letur + Minnka letur - A B C D |
|
Air Opera - Stjórnun árangursríkra fundaAir Opera - Stjórnun árangursríkra funda Stjórnun árangursríkra vinnufunda Fram á sjónarsviðið er komin ný tækni til að virkja sköpunarhæfni hópa og fá þá til að komast að sameiginlegri niðurstöðu á fljótvirkan hátt. Aðferðin er upprunnin í Finnlandi og byggir á því að virkja alla þátttakendur og að allir fái tækifæri til að koma hugsunum sínum og hugmyndum á framfæri. Aðferðafræðin til að ná þessu byggir á ákveðnu vinnuferli sem hefur hlotið nafnið AIR-OPERA. AIR-OPERA aðferðafræðin er notuð í mörgum af þekktustu fyrirtækjum Finnlands sem þekkt eru fyrir sköpununarhæfni og kröftuga vinnuhópa, t.d. Nokia og orkufyrirtækið Fortum. Ennfremur hafa mörg fyrirtæki utan Finnlands nú þegar tileinkað sér aðferðarfræðina með frábærum árangri. Hverjum er námskeiðið ætlað? Námskeiðið er ætlað stjórnendum, verkefnisstjórum, hópstjórum og í raun öllum þeim sem þurfa að stjórna hópstarfi þar sem komast þarf að niðurstöðu og/eða sameinast um leiðir að settu marki. Námskeiðsmarkmiðin Við námskeiðslok hafa þátttakendur öðlast þekkingu og getu til að nýta AIR-OPERA aðferðafræðina til að ná fram sameiginlegum niðurstöðum, jafnvel í erfiðum hópum. Helstu efnisþættir
Fyrirkomulag námskeiðsins Fyrirlestrar og æfingar í notkun AIR-OPERA. Leiðbeinandi Sævar Kristinsson, viðskiptafræðingur. Námslengd 4 kennslustundir. Verð 11.500 Hafið samband við Karl Friðriksson og/eða Jón Hreinsson ]ef nánari upplýsinga er þörf. |
Stækka letur + Minnka letur - A B C D |