Ísland varð aðili að Evrópska einkaleyfasamningnum 1. nóvember 2004.
Frá og með þeim tíma eru aðildarríki Evrópsku einkaleyfastofnunarinnar orðin 29 talsins.
Evrópska einkaleyfastofnunin er svæðisstofnun í skilningi hins alþjóðlega samstarfssamnings um einkaleyfi (Patent Cooperation Treaty) sem Ísland er aðili að.
Í samstarfssamningnum felst að leggja má inn alþjóðlegar umsóknir sem sendar eru áfram til einstakra ríkja til skráningar.
Markmiðið með evrópska einkaleyfasamningnum er hins vegar að koma upp samræmdu einkaleyfakerfi í Evrópu sem geri það auðveldara, ódýrara og tryggara að fá einkaleyfi í aðildarríkjum.
Staða og hlutverk Einkaleyfastofunnar mun breytast við aðild og færast í átt til aukinnar þjónustu við umsækjendur og atvinnulíf.
Þótt íslenskir aðilar geti nú þegar sent umsóknir til Evrópsku einkaleyfastofnunarinnar er talið eðlilegt að Ísland skipi sér í sveit nágrannaríkja með aðild sinni að stofnuninni.
Segja má að aðild að Evrópsku einkaleyfastofnuninni sé talin vísbending um að ríki hafi nútímalegt og aðgengilegt viðskiptaumhverfi. Slíkt getur e.t.v. skipt máli fyrir erlenda aðila sem hyggja á fjárfestingu hér á landi. (Sjá nánar á vef ráðuneytisins www.ivr.is Lög og reglugerðir/félagaréttur).